Vinadagur

Vinadagur grunnskólanna í Skagafirði verður í Íþróttahúsinu og skólanum miðvikudaginn 15. október kl. 10:00 – 13:00. Vinsamlegast athugið að auglýstur tími í Sjónhorni var ekki réttur.

Nemendur mæta í skólann kl. 8:10 og kennt verður samkvæmt stundaskrá fyrstu 2 kennslustundirnar. Kl. 10:00 hefst dagskrá í Íþróttahúsi. Á tímabilinu frá kl. 11:00 – 12:00 er árgangahittingur í stofum og hádegisverður í matsal, skipt eftir stigum. Dagskrá Vinadags lýkur kl. 13:00 hjá öllum nemendum og vetrarfrí hefst hjá nemendum Árskóla.