Útiíþróttir

Útiíþróttir verða í Árskóla frá 26. ágúst – 25. september. Allir nemendur þurfa að koma í viðeigandi fatnaði til útivistar. Í hjólreiðum er skylda að hafa hjálm. Ekki er skylda að fara í sturtu á meðan útiíþróttir standa yfir, en nemendum gefst þó kostur á að fara í sturtu eftir tíma. Ef veður er slæmt verður kennsla færð í íþróttasal.

Íþróttakennarar við Árskóla.

Dagskrá útiíþrótta