Upplestrarkeppni Árskóla

Upplestrarkeppni 7. bekkjar Árskóla fór fram í gær og stóðu nemendur sig með mikilli prýði. Eftirtaldir nemendur komust í úrslit og keppa í lokakeppninni sem fram fer í sal FNV, þriðjudaginn 10. mars: Diljá Ægisdóttir, Rannveig Sigrún Stefánsdóttir, Hildur Heba Einarsdóttir, Magnús Eyþór Magnússon, Birgitta Björt Pétursdóttir og Sólrún Silfá Guðmundsdóttir. Varamenn: Sindri Már Gústavssson og Magnús Logi Sigurjónsson.