Tilnefning til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla

Árskóli hlaut á dögunum 2 tilnefningar til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla, sem eru landssamtök foreldra.  Tilnefningar hlutu Vinaliðaverkefnið og verkefnið Að vera 10. bekkingur í Árskóla. Við erum afskaplega þakklát fyrir þessar tilnefningar og erum ánægð með að þessi flottu verkefni séu að fá verðskuldaða umfjöllun og viðurkenningu. Verðlaunin verða veitt í 21. sinn við hátíðlega athöfn í dag.