Til foreldra barna í 1. – 4. bekk Árskóla

Vegna framkvæmda hefst starfsemi Árvistar ekki fyrr en þriðjudaginn 19. ágúst. Frá þeim tíma og fram að skólabyrjun, sem er 22. ágúst, verður Árvist opin frá klukkan 7:45-16:00. Skólasetning verður 21. ágúst, nánar auglýst í næsta Sjónhorni og á vef skólans.

Vinsamlegast staðfestið skráningu í Árvist frá því í vor í síma 455-1100 eða sendið nýskráningu  í tölvupósti á netfangið ritari@arskoli.is. Umsóknareyðublöð eru á vef skólans arskoli.is. Athugið að sækja þarf um fyrir börnin í Árvist fyrir hvert skólaár, skráningar frá fyrra skólaári eru ekki gildar án staðfestingar.

Nýr deildarstjóri Árvistar er Vala Bára Valsdóttir.

Gert er ráð fyrir að skólatími nemenda á yngsta stigi verði að jafnaði á tímabilinu 8:10-13:10 í vetur.

Skólastjórnendur.