Þorrablót Árskóla

Samkvæmt venju verður þorrablót nemenda Árskóla haldið á bóndadaginn, föstudaginn 22. janúar. Hver bekkur verður með sitt þorrablót í bekkjarstofu kl. 10:00-12:00. Byrjað er á að safnast saman í Íþróttahúsi þar sem sungin verða nokkur þorralög og 8. bekkingar flytja minni karla og kvenna.

Markmiðið er að kynna fyrir nemendum gamlar íslenskar hefðir og siði.

Gert er ráð fyrir að allir nemendur komi með eitthvað smávegis af þorramat, sem sett verður á „hlaðborð“ í hverri bekkjarstofu. Nemendur mega hafa með sér safa eða gos. Til að auðvelda framkvæmdina væri gott að nemendur kæmu með þorramatinn niðurskorinn í hæfilega litla bita sem auðvelt er að stinga í með tannstöngli og fá sér „smakk“.

Athugið að á mið- og yngsta stigi er kennt er samkvæmt stundaskrá kl. 8:10-9:30 og kl. 12:00 til skólaloka.
Á unglingastigi er kennt kl. 8:10-9:40 og kl. 12:00 til skólaloka.

Þjóðlegur klæðnaður, s.s. lopapeysur, ullarsokkar, sjöl, skotthúfur o.fl., er vel við hæfi þennan dag.

Starfsfólk Árskóla