Þemadagar í Árskóla

Dagana 21. – 23. október verða þemadagar í skólanum og er þemað að þessu sinni tileinkað starfi skólans, nýjungum í kennsluháttum, hefðum, viðburðadögum, árshátíðum o.fl. Unnið verður í árgangamiðuðum hópum þar sem 1. og 2. bekkur vinna saman, 3. og 4. bekkur og svo koll af kolli. Skóladagur nemenda á þemadögum, frá miðvikudegi til föstudags er kl. 8:10 – 13:10 á öllum stigum. Öllum er velkomið að líta við og fylgjast með vinnu nemenda á þemadögum.

Laugardaginn 24. október verðum við með sýningu og opið hús í skólanum kl. 11:00-14:00. Kaffihús verður opið þar sem nemendur selja kaffi, djús og meðlæti sem þeir hafa bakað og auk þess verður sölubás með ýmsum vörum sem nemendur hafa búið til. Allur ágóði rennur til góðgerðamála.

Foreldrar/forsjáraðilar athugið: Gert er ráð fyrir viðveru nemenda þennan laugardag á meðan opið hús stendur yfir og er dagurinn í stað föstudagsins 22. apríl sem verður þá frídagur í skólanum.

Vonumst eftir að sjá ykkur sem flest. Allir velkomnir!