Skólasetning Árskóla fer fram í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki þriðjudaginn 23. ágúst sem hér segir:
Yngsta stig, 2. - 4. bekkur kl. 10:00
Miðstig, 5. - 7. bekkur kl. 10:30
Unglingastig, 9. - 10. bekkur kl. 11:00
Foreldrar og/eða forsjáraðilar eru hjartanlega velkomnir.
Hægt er að nota aðalinngang skólans eða inngang Íþróttahúss að vestan.
Nemendur 8. bekkjar mæta til skólasetningar í matsal mánudaginn 29. ágúst kl. 08:10. Nánari upplýsingar í tölvupósti til foreldra.
Skólastarf 1. bekkinga hefst með viðtölum þriðjudag - fimmtudag. Foreldrar eru boðaðir með tölvupósti.
Nýnemar í 2. - 10. bekk sem ekki hafa þegar verið skráðir í skólann vinsamlegast hafið samband við skrifstofu, sími 455 1100.
Með ósk um farsælt skólastarf í vetur.
Starfsfólk Árskóla