Skólahreysti

2.sætið
2.sætið

Árskóli tók þátt í Norðurlandsriðli í Skólahreysti  í síðustu viku og stóðu krakkarnir sig með mikilli prýði jafnt innan brautar sem utan. Fjölmennt stuðningsmannalið fylgdi keppendum til Akureyrar og studdi dyggilega við bakið á sínu fólki. Voru bæði keppendur og áhorfendur skólanum til mikils sóma og færum við þeim hamingjuóskir með flottan árangur.