Skólahópur Ársala í heimsókn

Skólahópur Ársala kemur reglulega í heimsókn hingað í Árskóla til að kynna sér skólann og taka þátt í kennslustundum. Í dag heimsótti skólahópurinn 3. bekkinga í kennslustund í upplýsingatækni. Eins og sjá má af myndunum tókst heimsóknin vel og höfðu allir gaman af.