Skíðaferðir Árskóla

Nú standa yfir skíðaferðir hjá okkur í Árskóla. Rútufarmar af börnum flykkjast upp í Tindastól á degi hverjum til að njóta samvista og skemmta sér saman í fjallinu með starfsfólki skólans og foreldrum. Ferðirnar hafa gengið vel og snúa börnin heim sæl og útitekin eftir skemmtilega daga á skíðum. Hér er hægt að sjá nokkrar myndir frá ferðunum.