Maritafræðsla fyrir foreldra 8.-10. bekkinga

Fræðslufundur fyrir foreldra 8.-10. bekkinga. Forvarnarfulltrúinn Magnús Stefánsson mun sækja Árskóla heim miðvikudaginn 12. nóvember nk. Magnús ræðir við unglingana ykkar á skólatíma og er með fund fyrir foreldra sama kvöld. Foreldrafræðslufundurinn er í matsal Árskóla. Hann hefst kl. 18:00 og ætti að vera lokið kl. 19:30.  
Við hvetjum ykkur til að mæta á fundinn. Það er mikilvægt að vita hverjar hætturnar eru, geta haldið umræðunni áfram heima og síðast en ekki síst að standa saman sem foreldrahópur.