Lestrarátak Ævars vísindamanns

Eftir gríðarlega góðar viðtökur síðasta vetur snýr lestrarátak Ævars aftur.


Átakið virkar þannig að fyrir hverjar þrjár bækur sem nemendur í 1. - 7. bekk lesa fylla þau út svokallaða lestrarmiða (sem verða á skólabókasafni hvers skóla, en einnig er hægt að sækja hér fyrir ofan). Foreldri eða kennari kvitta á hvern miða og svo verður miðinn settur í lestrarkassa á næsta skólabókasafni.

Í lok átaksins verða miðarnir sendir til Heimilis og skóla, en starfsfólkið þar munu sjá um að taka við þeim. Því fleiri bækur sem börnin lesa því fleiri miða eiga þau í pottinum. Það skiptir engu máli hvort bókin sem er lesin sé löng eða stutt, teiknimyndasaga, Myndasögusyrpa eða skáldsaga - bara svo lengi sem börnin lesa.

Sömuleiðis skiptir tungumálið sem bókin er á ekki máli. Bækurnar mega vera á íslensku, dönsku, frönsku, pólsku, japönsku, ensku osfrv. - bara svo lengi sem börnin lesa.

Í lok átaksins dregur Ævar út nöfn fimm barna og fá þau í verðlaun að verða persónur í nýrri ævintýrabók sem hann er að skrifa (Bernskubrek Ævars vísindamanns 2: Árás vélmennakennaranna) sem kemur út með vorinu hjá Forlaginu - svo það er til mikils að vinna.

Þetta er lestrarátak gert af bókaormi, til að reyna að búa til nýja bókaorma - en það er dýrategund sem má alls ekki deyja út.


Gangi ykkur vel!

 

-Ævar