Leiksýning í Árskóla

 Leiklistarval 9. bekkjar Árskóla sýnir leikverkið Útskriftaferðin eftir Björk Jakobsdóttur í matsal Árskóla þriðjudaginn 12. maí og hefst sýninginn kl. 18:00.  Ókeypis er inn og allir velkomnir.

Leiklistarvalið er þátttakandi í verkefninu Þjóðleikur sem er leiklistarverkefni á landsbyggðinni og fer  fram í samvinnu Þjóðleikhússins og menningarráða, leikfélaga og skóla og margra aðila um land allt. Um helgina tóku þau þátt í Þjóðleikshátíð á Ísafirði þar sem sex leiklistahópar frá Ísafirði, Hólmavík og Sauðárkróki sýndu sín leikverk.