Langar þig til að búa til tölvuleik?

Game Creator: keppni um besta tölvuleikinn Ef þig langar til að búa til tölvuleik, ert með góða hugmynd að leik eða langar til að læra örlítið meira um hvernig tölvuleikir eru gerðir þá er Game Creator eitthvað fyrir þig. Þátttakendum er boðið að taka þátt í fjórum vinnustofum (efnið verður einnig aðgengilegt á netinu) þar sem sérfræðingar veita aðstoð við gerð leikjanna. Keppnin byrjar 18. janúar og skiladagur á fullbúnum leik er 16. febrúar. Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um keppnina.