Landsleikur á Sauðárkróksvelli

Nemendur 10.bekkjar Árskóla (Ísland) lögðu gesti sína frá Höjelse (Danmörk) í æsispennandi knattspyrnulandsleik á Sauðárkróksvelli. Harpa Sif kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik eftir góðan undirbúing frá Ásbirni og Helgi Sigurjón bætti síðan öðru marki við með lúmsku skoti. Danska liðið minnkaði munin í 2-1 en það var svo Helgi sem bætti við sínu öðru marki, með þrumuskoti og tryggi Íslandi 3-1 sigur. Það var góð liðsheild og barátta sem gerði gæfumuninn þegar upp var staðið.