Kosningar í 10. bekk

Jónas Aron Ólafsson og Hrafnhildur Snæbjörg Baldursdóttir hlutu kosningu sem formenn 10. bekkjar. Þau munu fara fyrir fjáröflunar- og félagsstarfi 10. bekkinga og sitja í stjórn nemendafélagsins.  Fjáröflunarráð og ritnefnd skólablaðsins Glóðafeykis verða skipuð innan tíðar. Óskum við þeim kærlega til hamingju með kosninguna og hlökkum til að sjá þau að starfi í vetur.