Íþróttadagur Árskóla

Mikil gleði og stemning einkenndi skólastarf í dag þegar árlegur íþróttadagur rann upp. Allir nemendur og starfsfólk skólans tóku þátt í fjölbreyttri íþróttadagskrá sem innihélt keppni og leiki af ýmsu tagi. Þar mátti m.a. sjá dans, skjaldbökuklukk, gryfjubolta, sjúkrahúsleik, fánaleik, boðhlaup, reiptog, keppni milli starfsfólks og nemenda 5. bekkjar í bandí. Rúsínan í pylsuendanum var svo körfuboltaleikur milli nemenda 10. bekkjar og starfsfólks skólans. Leikurinn var æsispennandi og lauk með sigri 10. bekkinga 18:16.