Göngum í skólann

Árskóli hefur ákveðið að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands, Embætti landlæknis, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra,
Samgöngustofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann verður
sett miðvikudaginn 10. september og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum
miðvikudaginn 8. október.
Þetta er í áttunda sinn sem verkefnið er haldið hér á landi og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt.
Meginmarkmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka
færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar, að
draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að
vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið
er. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann
með einum eða öðrum hætti. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess
www.gongumiskolann.is


Göngum í skólann í okkar skóla
Skólinn hefur nú þegar verið skráður til leiks og við hvetjum alla til þess að taka þátt. Hugmyndin er að
vera með ýmsar uppákomur þann mánuð sem Göngum í skólann stendur yfir, einnig hvetjum við ykkur
kæru foreldrar/forráðamenn til þess að nýta ykkur verkefnið og þá umræðu sem skapast þennan
mánuðinn til þess að ræða þessi mál við börnin ykkar og fara öruggustu leiðina í skólann með yngstu
börnunum.
Vonandi gengur þetta vel hjá okkur. Verum endilega opin fyrir þessu og jákvæð og nýtum haustið til að
vekja athygli á hreyfingu og öryggi barnanna okkar á leiðinni í skólann.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá hafið samband við umsjónarkennara.
Gangi ykkur vel
Kveðja,
starfsfólk Árskóla