Fundur með foreldrum 10.bekkjar

Á fundinum verður farið yfir skipulag daganna 7.-10. október þegar danskir nemendur eru í heimsókn hjá okkur. Fjáröflunar- og félagsstarf verður einnig til umræðu. Eftir þennan fund er hefðbundinn kynningarfundur með umsjónarkennurum. Fundurinn hefst klukkan 17:30 í matsalnum og gert er ráð fyrir að öllu verði lokið fyrir kl. 19:00. Nauðsynlegt er að fulltrúi frá hverju heimili mæti á fundinn. Vinsamlegast látið umsjónarkennara vita ef slíku verður ekki fyrirkomið.