Erlendir gestir í heimsókn

Dagana 9. og 10. október munu erlendir gestir heiðra okkur með nærveru sinni. Um er að ræða skólafólk sem er með Árskóla í Comeniusarverkefni og koma þeir frá 8 þjóðlöndum. Móttaka verður í íþróttahúsinu á fimmtudaginn kl. 9:30 þar sem gestirnir munu verða vitni að upphafi dansmaraþons 10. bekkjar. Gestirnir munu einnig fá skoðunarferðir um Skagafjörð og Sauðárkrók ásamt því að 9. bekkur mun kynna fyrir þeim Árskóla.