Dansmaraþonbolir til sölu

Nú fer að styttast í árlegt dansmaraþon hjá 10. bekk, en það verður 7. og  8. október.

Hægt er að panta dansmaraþonboli hjá skólaritara. Ágóði sölunnar rennur í ferðasjóð 10. bekkinga. Í ár eru bolirnir limegrænir með svörtu þrykki.  Þeir fást í stærðunum XS youth, S youth, M youth, XL youth, S, M, L, XL og XXL.  Bolurinn kostar 1500.- kr. Sýnishorn til mátunar eru hjá skólaritara.

Vinsamlegast sendið pantanir á netfangið ritari@arskoli.is eða hafið samband í síma 455-1100. 

Kveðja 10. bekkur Árskóla