Dansmaraþonbolir til sölu

Nú fer að styttast í árlegt dansmaraþon hjá 10. bekk, en það verður 9. og  10. október.

Hægt er að panta dansmaraþonboli hjá skólaritara. Ágóði sölunnar rennur í ferðasjóð 10. bekkinga. Í ár eru bolirnir bláir með grænu þrykki.  Þeir fást í stærðunum XS youth, S youth, M youth, L youth, XL youth, S, M, L, XL.  Bolurinn kostar 1500.- kr.

Vinsamlegast sendið pantanir á netfangið ritari@arskoli.is eða í síma 455-1100.