Börn hjálpa börnum

Í vikunni fyrir páskafrí söfnuðu þessir duglegu krakkar í 5.HG í Árskóla rúmlega 150.000 krónum til styrktar ABC barnahjálpinni.  Að þessu sinni er verið að  safna fyrir nýrri heimavist stúlkna við heimavistarskólann í Machike í Pakistan.
Á myndinni eru þau ásamt umsjónarkennara sínum.
 
Krakkarnir vilja þakka öllu því góða fólki sem lagði þeim lið í söfnunni.