Bleikur dagur í Árskóla

Síðastliðinn föstudag var bleikur dagur í Árskóla. Viðburðadaganefnd leggur til að nemendur og starfsfólk mæti í sérstökum klæðnaði nokkra föstudaga yfir skólaárið og varð bleiki liturinn fyrir valinu til að sýna stuðning og til þess að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Hérna eru nokkrar myndir frá bleika deginum í Árskóla.