Árvist flytur

Í gær, fimmtudaginn 27. febrúar, opnaði Árvist í nýju húsnæði í gömlu félagsmiðstöðinni í kjallara Árskóla við Skagfirðingabraut. Með þessum flutningi er sögulegum áfanga náð þar sem öll starfsemi Árskóla er nú komin undir sama þak. Hér eru nokkrar myndir frá opnuninni.