Árskóli kominn á Facebook

Við höfum skráð Árskóla á Facebook og viljum við hvetja foreldra og nemendur til að tengjast síðunni okkar. Við munum birta fréttir og myndir úr skólastarfinu jafnóðum og þær birtast á heimasíðu skólans og vonum við að þessu framtaki okkar verði vel tekið. Með þessu erum við að bæta upplýsingagjöfina til þeirra sem að skólanum koma og sjá til þess að upplýsingar varðandi skólann berist sem flestum.

https://www.facebook.com/pages/%C3%81rsk%C3%B3li/1447506285470322