Árshátíðarleikrit 10. bekkjar

Nú er komið að hinu árlega leikriti 10. bekkjar sem sett er upp sem liður í fjáröflun þeirra. Í þetta sinn varð verkið Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner fyrir valinu. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og skemmta sér með okkur í Bifröst og styrkja gott málefni í leiðinni. Hægt er að nálgast upplýsingar um sýningar og pantanir í Sjónhorninu eða hér.