Árshátíð unglingastigs

Í dag og á morgun verða árshátíðarsýningar hjá 8. og 9. bekk haldnar í Bifröst. Að vanda hafa krakkarnir vandað sig við að búa til skemmtileg leikrit og söngatriði til að gleðja góða gesti. Sýningartímar eru klukkan 17:00 og 20:00 báða dagana og er hægt að panta miða í síma 453 5216 (Bifröst) eftir klukkan 14:00. Við hvetjum ykkur til að kíkja á þessa skemmtun hjá krökkunum og eiga með okkur góðar stundir. Bifröst er komin í jólabúning og fátt er betra í byrjun aðventunnar en að skemmta sér með þessum frábæru krökkum sem við eigum.  Hlökkum til að sjá ykkur.