Árshátíð miðstigs

Í dag og á morgun munu nemendur í 5.-7. bekk Árskóla flytja árshátíðarleikritin sín. Sýningarnar verða tvær báða dagana og eru sýningar klukkan 17:00 og 20:00. Við hvetjum alla sem áhuga hafa á að sjá þessar stórskemmtilegu sýningar að tryggja sér miða í tíma því að þeim fækkar óðum. Hægt er að panta miða í síma 453 5216.