Árshátíð 8. - 9. bekkjar

Frumsamin leikrit í flutningi 8. og 9. bekkinga fyrir alla, konur og karla, frændur og frænkur, afa og ömmur, vini og velunnara. Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin.

Sýningar í Bifröst:

Miðvikudaginn 3. desember kl. 17:00 og 20:00.

Fimmtudaginn 4. desember kl. 17:00 og 20:00.

Miðapantanir í síma 4535216, frá kl. 14:00-20:00 báða dagana.

Miðaverð: Fullorðnir kr. 1.500,- Grunnskólanemendur kr. 1.000,-

Yngstu leikhúsgestirnir (leikskólaaldur) kr. 500,-

Strákarnir og stelpurnar – séð með þeirra augum!

8. bekkur færir þér sannleikann um hvernig það er að vera 13 ára. Stelpur og strákar eru kannski ekki alveg eins, eða hvað?

Á skjánum.

Uppáhaldssjónvarpsþættirnir þínir og fyndnustu auglýsingarnar í leikgerð 9. bekkinga.

 

Við lofum þér gleði og gríni.

Hver veit nema þú hlægir upphátt!

 

Allur ágóði fer í ferðasjóð 10. bekkinga.  Þökkum þér stuðninginn.