Áríðandi tilkynning

Til foreldra/forsjáraðila

Eins og stendur er skólarútan ekki á ferðinni vegna veðurs. Nemendum er ekki hleypt heim án fylgdar og verða þeir í skólanum í góðu yfirlæti þar til veðrinu slotar og þeir verða sóttir af foreldrum/forsjáraðilum. Foreldrum er bent á að bíða af sér versta veðrið áður en þeir sækja börnin sín. 

Skólastjórnendur