Ágætu foreldrar

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Félag grunnskólakennara boðað vinnustöðvun á morgun, miðvikudaginn 21. maí. Þetta þýðir að skólahald fellur niður ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma. Starfsemi Árvistar verður óbreytt.
Við biðjum ykkur að fylgjast með fréttum í kvöld og í fyrramálið.
Kveðja, skólastjórnendur