8.bekkur í Ipad kennslustund

Nú eftir áramót er 8.bekkur að taka þátt í að þróa Ipad kennslu og nám með völdum kennurum. Í gær var fyrsti tíminn þegar krakkarnir fóru í náttúrufræðitíma með lpad 1 á 1. Þetta vakti mikla lukku og tóku krakkarnir þessum nýju kennsluháttum fagnandi. Er það von okkar að áframhaldið verði með sama hætti og að allir eigi eftir að taka þessari þróun með jákvæðni að leiðarljósi.