4. SG styður bekkjarsystur sína

Nemendur í 4. SG héldu á dögunum hlutaveltu og prúttmarkað í anddyri Skagfirðingabúðar.  Fyrir ágóðann keyptu þeir iPad til að gleðja bekkjarsystur sína, Selmu Björk Þórudóttur, sem verið hefur veik í haust og ekki getað mætt í skólann af þeim sökum. Myndirnar voru teknar þegar Selma Björk kom í skólann og veitti gjöfinni viðtöku. Myndir frá heimsókninni.