30. sýningu lokið

Sýningu númer 30 lauk í gær með strumpunum í 4. bekk. Alls hafa um 3000 áhorfendur mætt á leiksýningar Árskóla til að sjá krakkana okkar koma fram og vonum við að aðsóknin endurspegli það góða starf sem krakkarnir hafa innt af hendi þetta skólaárið. Við, sem komum að þessum sýningum fyrir hönd Árskóla, viljum nota tækifærið og þakka þeim sem á horfðu fyrir mætinguna.