10. bekkur styrkir gott málefni

Ívar ásamt Alexöndru og Róbert
Ívar ásamt Alexöndru og Róbert
Þessi yndislegi strákur sem er með okkur Róbert á myndinni heitir Ívar Elí, hann er flogaveikur og þarf að fara til Boston í læknisrannsóknir, bekkurinn minn þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar við fengum þá hugmynd að gefa hluta af peningunum sem við höfum safnað í vetur til styrktar honum og fjölskyldu hans. 110 þúsund krónur runnu til þeirra og vona ég að þessi peningur hjálpi þeim eitthvað. 
Það sem ég er stolt að hafa fengið að tilheyra þessum bekk er ómetanlegt ❤  Alexandra Ósk