1.bekkur á bekkjarkvöldi

Í kvöld var haldið stórskemmtilegt bekkjarkvöld með 1.bekkingum og foreldrum þeirra. Farið var í leiki þar sem krakkarnir glímdu við fjölmargar þrautir í anda "minute to win it" og var mikið fjör hjá yngstu nemendum okkar. Að loknum leikjum var sest að snæðingi við stórglæsilegt hlaðborð og fóru allir sáttir heim. Myndir frá bekkjarkvöldinu.