Árshátíð miðstigs

Ágætu bæjarbúar.

 Okkar árlega árshátíð miðstigs Árskóla (5., 6. og 7. bekkjar), verður haldin í félagsheimilinu Bifröst nk. miðvikudag og fimmtudag.                     

Dagskráin verður fjölbreytt að vanda, leikur og söngur úr ýmsum áttum.

 

Sýningar verða sem hér segir:

Miðvikudagur 26. febrúar kl. 17:00 og 20:00.

Fimmtudagur 27. febrúar kl. 17:00 og 20:00.

 

Miðaverð er:

500.- kr. fyrir börn á leikskólaaldri

1000.- kr. fyrir grunnskólanemendur

1500.- fyrir fullorðna

 

Miðasala er báða dagana frá kl. 14:00 – 20:00 í Bifröst, einnig er hægt að panta miða í síma: 453-5216.

Athugið að ekki er unnt að taka við greiðslukortum en hraðbankar eru staðsettir í nágrenni Bifrastar.

Takmarkað sætaframboð.

 

Verið velkomin, við hlökkum til að sjá ykkur.

 

                                  Nemendur á miðstigi Árskóla.